helga 的个人资料helgabelga照片日志列表 工具 帮助

ingadottir helga

此共享空间没有音乐列表。

helgabelga

2008年9月

sumar 2008

jæja á maður kannski að fara að nota þetta space aftur. Soldið gaman að lesa og skoða myndirnar svona aftur í tíman hvað var að gerast hjá manni. Næstum því eins og dagbók. Well alla vega ágætt búið að gerast síðan síðast ég skrifaði. Vespan er þvílíkt að gera sig í mínu lífi :) Enn er ekkert handriðið komið en svalirnar hafa samt sem áður verið notaðar óspart í sumar bæði með mat og drykk. Sumarið var ágætt. Labbaði upp á snæfellsjökul, gisti upp á snæfellsnesi, var á akureyri og fór til Dublin og margt fleira skemmtó. Lífið gengur hinn sama gang hjá Rögnu Grétu, hún til dæmsi er ný búin að naga í sundur helðslusnúruna á gsmanum ekki á einum stað heldur 3 stöðum þannig að hún er í stuðinu :P nokkrar myndir frá sumrinu :)
2008年2月

Dublin kallar

Bókaði ferð til Dublins í dag fyrir mig og systur mína, 24.200 fyrir tvo, með skatti og forfallatryggingu. Ekki verst....nú er bara að spara fyrir new york, handriðið, vespuviðgerðum og öllu hinu. Jei Dublin here we come :)
2007年11月

Nýr fjöldskyldumeðlimur

Það hefur bæst við fjöldskylduna í Grettisgötunni, það er strákur og hann hefur fengið nafnið Ingimundur. Ingimundur er lítill, þægilegur, og ótrúlega sætur. Hann hefur áhuga á tónlist, alls konar kvikmyndum og finnst gott að láta koma við sig. Ingimundur kemur frá landi sem heititr www.apple.com og er bara mjög sáttur við sitt nýja líf í Grettisgötunni með mér og Rögnu Grétu, en vill ekki láta mynda sig eins og er...........en fólk er velkomið að koma í heimsókn og dást af honum ;)
2007年9月

Lífið

Lífið samanstendur af því að lesa þessa dagana. Formúlur, úrtak, þýði, z-gildi og annað skemmtilegt Tongue out  Verð að viðurkenna að mér finnst skólinn vera drullu erfiður og að ég verði að aga sjálfan mig mikið betur til að setjast niður og lesa. Vantar aðhald til að passa að ég lesi, er greinilega ekki nógu fullorðin til að passa upp á þetta sjálf. Annars er búið að festa upp gufugleypi og hillu inn í eldhúsi. rosa fínt. Svo er búið að ganga frá afsali á Lindargötunni en hlutirnir ganga ekki eins vel á grettisgötunni...............þar fer maður hálf grátandi af fundi.
2007年9月

Skokk

Haldið að gamla hafi ekki keypt sér  hlaupa skó Surprised  Nú er bara að finna tíma til að skella sér út að hlaupa eða í ræktina......þarf kanski bara að ráða auper í það....Sarcastic
2007年9月

Grettisgata 70

Lífið í Grettisgötu 70 á ágætlega við mig. Bý í öðru herberginu og í hinu í býr tékknesk stepla sem er að læra íslensku. Hún er ágæt, bakar handa mér köku, tipplar á tánum og rífur niður veggfóður á baðinu. Ekki verra að hafa þannig meðleiganda Wink Ragna Gréta hefur tjáð ánægu sína með nýtt heimili. Það eru svalir og þök sem hún getur skoppað og hoppað á og ýmsir leyniklefar sem hægt er að fela sig í. Annars er margt sem þarf að gera á nýja heimilinu, mála, laga veggi, loft og gólf, setja upp hillur, gufugleypi, ný ljós og trúlega mikið meira. Mamma kom í heimsókn og reyndists vera hin mesti forkur þegar kemur að því að vera iðnaðarmaður. Surprised  Maður reynir bara að gera þetta smá saman þar sem maður er líka orðin skólapæja í háskólanaum með sinni 110% vinnu Tongue out
2007年7月

flutningur undirbúnn

Styttist í flutning úr Lindargötunni og yfir í Grettisgötunni, þannig að þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að finna kassa, skrúfa hluti í sundur og pakka ölllu. Ótrúlegt hvað maður á mikið af dótiSurprised
 
第 1 张,共 13 张